BJORK

BJORK - Jlaktturinn lyrics

rate me

(Icelandic christmas-compilation) Þið kannizt við jólaköttinn - sá köttur var griðarstór Fólk vissi'ekki hvaðan hann kom eða hvert hann fór Hann glennti upp glyrnurnar sinar glóandi báðar tvær Það var ekki heiglum hent að horfa í þær Kamparnir beittir sem broddar upp úr bakinu kryppna há og klærnar à loðinni löpp var ljótt að sjá Því var það, að konurnar kepptust við kamba og vefstól og rokk og prjónuðu litfagran lepp eða lítin sokk Þvi kötturinn mátti' ekki koma og krækja í börnin smá Þau urðu að fásína flík þeim fullorðnu hjá Og er kveikt var á jólakvöldið og kötturin gægðist inn stóðu börnin bísperrt og rjóð með böggulinn sinn Hann veifaði stélinu sterka hann stökk og hann klóraði' og blés og var ýmist uppi í dal eða úti' um nes Hann sveimaði, soltinn og grimmur í sárköldum jólasnæ og vakti í hjörtunum hroll á hverjum bæ Ef mjálmað var aumlega úti var ólukkan samstundis vís Allir vissu' að hann veiddi menn en vildi ekki mýs Hann lagðist á fátæka fólkið sem fékk enga nýja spjör fyrir jólin - og baslaði og bjó við bágust kjör Frá því tók hann ætið í einu allan þess jólamat og át það svo oftast nær sjálft ef hann gat Því var það, að konurnar kepptust við kamba og vefstól og rokk og prjónuðu litfagran lepp eða lítin sokk Sum höfðe fengið svuntu og sum höfðu fengið skó eða eitthvað, sem þótti þarft en þad var nóg Þvi kisa máti' engan eta sem einhverja flíkina hlaut Hún hvæsti þá heldur ljót og hljóp á braut Hvort enn er hún til, veit ég ekki en aum yrði hennar för ef allir eignuðust næst einhverja spjör Þið hafið nú kannske í huga að hjálpa, ef þörf verður á máske enn finnist einhver börn sem ekkert fá Máske, að leitin að þeim sem líða af ljósskorti heims um ból gefi ykkur góðan dag og gleðileg jól

Get this song at:  amazon.com  sheetmusicplus.com

Share your thoughts

0 Comments found